Skip to main content
search
0

Hlaupum saman og söfnum fyrir hringekju á Lyngás!

Ás Styrktarfélag tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka þann 22. ágúst 2026 með það að markmiði að safna fyrir nýrri hringekju á útileiksvæði Lyngáss.

Lyngás er leikskóladeild Áss þar sem lögð er áhersla á öruggt, skapandi og aðgengilegt umhverfi fyrir börnin okkar. Með nýrri hringekju getum við skapað fleiri tækifæri til leiks, hreyfingar og samveru fyrir öll börn.

Í gegnum árin hefur Ás notið ómetanlegs stuðnings frá hlaupurum, velunnurum og styrktaraðilum í Reykjavíkurmaraþoninu. Sá stuðningur hefur skipt miklu máli fyrir starfsemi félagsins og áframhaldandi uppbyggingu þjónustunnar.

Við hvetjum alla sem vilja styðja gott málefni til að taka þátt með okkur:

  • hlaupa fyrir Ás
  • heita á hlaupara
  • eða deila verkefninu áfram

Skráning

Skráning í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram á: 👉 www.rmi.is

Við biðjum þátttakendur sem vilja hlaupa fyrir Ás að velja Ás Styrktarfélag sem sitt góðgerðarfélag við skráningu.

Saman getum við gert gæfumun fyrir börnin á Lyngás 💙