Þann 29. maí fór starfsfólk Stjörnugrófar og Áss vinnustofu í hina árlegu veiðiferð í Elliðaárnar, í boði Stangveiðifélags Reykjavíkur og Orkuveitunnar.
Veðrið lék við þau og stemningin var frábær. Margir fengu að spreyta sig á stönginni og nutu samverunnar í fallegu umhverfi. Ferðin heppnaðist afar vel og færum við Stangveiðifélaginu og OR okkar bestu þakkir fyrir gott boð.











