Skip to main content
search
0

Jólamarkaðurinn Ögurhvarfi og jólahúsið á aðventuhátíð Kópavogs

Fréttamynd - IMG 3734

Við erum ánægð með frábæra mætingu til okkar um helgina. Fullt var út úr dyrum í Ögurhvarfi og margir komu við hjá okkur í jólahúsið á aðventuhátíðinni við menningarhúsin í Kópavogi. 

 

Á markaðinum og í jólahúsinu vorum við að selja vöru sem er í framleiðslu árið um kring á starfsstöðvum félagsins í Ási vinnustofu, Bjarkarási, Lækjarási og Smíkó. 

 

Við minnum á að þeir sem komust ekki eru alltaf velkomnir í verslunina okkar í Ögurhvarfi 6 sem er opin alla virka daga frá kl 09.00-15.30. Með því að versla vörur hjá Ási tryggið þið að fatlað fólk hafi fjölbreytt verkefni í sinni vinnu.

 

Hérna getið þið skoðað myndir frá báðum viðburðum.