Lyngás
Úti að versla
Úti að versla
Starfsmenn í dagþjónustu
Vinningsnúmer
Dregið hefur verið í happdrætti Áss styrktarfélags. 1. vinningur - Chevrolet Cruze LTZ 5 dyra kr. 3.695.000.
Félagið óskar vinningshöfum til hamingju og þakkar veittan stuðning
Einstaklingur, sem vegna fötlunar á erfitt með að gæta hagsmuna sinna, á rétt á að velja persónulegan talsmann sér til aðstoðar skv. 7. grein laga um réttindagæslu fyrir fatlað fólk frá 2011. Meðal skilyrða sem þarf að uppfylla til þess að gerast persónulegur talsmaður er að sækja fræðslu um innihald og áherslur í starfinu. Um sjálfboðið starf er að ræða en tilfallandi kostnaður er greiddur.
Námskeið fyrir áhugasama
Þeir sem hafa áhuga á að gerast persónulegir talsmenn eru beðnir um að hafa samband við réttindagæslumann fatlaðs fólks á sínu svæði fyrir 8. janúar nk. og munu í framhaldinu fá upplýsingar um námskeið vegna fyrrgreindrar fræðslu. Réttindagæslumaður mun veita frekari upplýsingar um hlutverk persónulegs talsmanns sé þess óskað, en nálgast má lög um réttindagæslu fyrir fatlað fólk sem og reglugerð um persónulega talsmenn á www.vel.is.
Gunnar Stefánsson les upp úr bók Jóhannesar úr Kötlum